Kjarninn

May 5, 2007

Thou shallt always…

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:07 pm


February 6, 2007

Hættur

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:44 pm

Jæja, ég held ég hafi ekki tíma til að halda úti nothæfri bloggsíðu sjálfur.

Ásamt öðrum meðlimum bókmenntaklúbbsins Krumma skrifa ég nú pistla á síðuna:
http://hrafnaspark.blog.is

ef einhver skyldi hafa áhuga á að lesa.

January 1, 2007

17 tonn

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:33 pm

Nú um áramót er vel við hæfi að líta aðeins um öxl. Í ljósi þess að samkvæmt almennu áliti vísindamanna eru ekki nema eins og nokkrir áratugir þar til kolvísýringsútblástur jarðarbúa nær að útrýma ísbjörnum er eðlilegt að líta yfir mitt persónulega framlag í þeim efnum á árinu 2006.

Aksturinn sýnist mér ekki hafa verið sérlega mikill á heimilinu, þó hann mætti vera á sparneytnari bíl. Líklega hafa verið eknir innan við 10.000 km og útskilnaður koltvísýrings vegna þeirra er lauslega áætlaður um 6 tonn. Flugkílómetrarnir eru hins vegar nokkuð margir eða um 31500 og þeir kílómetrar vega þungt í útskilnaðarmálum, um 11 tonn voru losuð út í andrúmsloftið við það.

Þetta gerir því samtals um 17 tonn af koltvísýringi sem bara ferðir mínar hafa losað út andrúmsloftið. Við þetta þyrfti að bæta losun upp á einhver tonn vegna flutnings og framleiðslu matar og annars varnings, þó það sé nokkuð erfiðara að áætla þann þáttinn.

Þegar ég lít yfir árið hvað varðar minn persónulega þátt þá hef ég líklega gert eiginlega ekki neitt til að draga úr útblæstri. Ég hef ekki sleppt ferðalögum, allt of sjaldan hjólað í vinnuna og er ekki á sparneytnum bíl.

Vonandi eru gróðurhúsaáhrifin bara ímyndun. Kannski er einskær tilviljun að fyrirbærið jólasnjór þekkist vart lengur, nú er orðið réttara að tala um jólarigninguna, jólapolla eða jafnvel jólaflóðin eins og þetta árið.

Ég ætla samt að gera ráð fyrir að álit sérfróðra manna sé rétt og reyna að ganga betur um náttúruna á næsta ári. Framtíð barnabarna minna og barnabarna þeirra er í húfi.

Gleðilegt ár

December 18, 2006

Hættulegustu vegir…

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:26 pm

…jarðarinnar hér.

December 1, 2006

Musicovery

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:25 pm

Fyrir þá sem eru búnir að fá leið á auglýsingum í útvarpi, hrein tónlist hér. Bara að velja hvaða tónlistartegund þú vilt hlusta á og hvort lagið á að vera líflegt eða rólegt, síðan býr til lagalista fyrir þig.

November 30, 2006

Allir eru komnir í jólamarkaðinn

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:56 pm

Meira að segja þessi.

Sýnishorn af tónlistinni hér.

Hetja dagsins

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:47 pm

Bjargaði systur sinni úr klóm ræningja

Enn ein hetjudáð mengunarinnar

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 6:28 pm

Yangtse-höfrungurinn er líklega nú að ná þeirri stöðu að teljast útdauður. Ekkert dýr hefur sést nú í langan tíma og því er farið að telja að engin séu eftir. Þetta er í fyrsta skiptið sem dýr af ættkvísl hvala verður útdauð af manna völdum.

Um yangtse höfrunginn og ýmis önnur næstum útdauð dýr var fjallað um í frábærri ferðasögubók Douglas Adams, “Last chance to see”. Mæli sterklega með lestri.

Herseta í Írak

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 12:33 pm

Þýðir að landið er fullt af svona týpum á flakki um landið. Þungvopnaðir.

November 18, 2006

Húsfreyjan

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 5:48 pm

Ekki vissi ég að líf húsfreyjunnar gæti verið svona spennandi.

Sögufölsun

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 5:47 pm

Svona er sagan fölsuð.

Næsta

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 5:30 pm

jaðarsport. Myndband hér.

November 16, 2006

Yes men vitringarnir

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 6:23 pm

með einn eitt giggið.

Líklega

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 6:14 pm

eru fáir jafn frægir einstaklingar sem veita jafn sjaldan viðtöl eins og þessi maður.

November 12, 2006

Healing Dick

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:35 pm

Ég held ég sé sammála þessum síðuhöfundi að eitt af stóru vandamálum heimsins sé að Dick Cheney sé bitur, ófullnægður gamall karlfauskur.

Ekki samt alveg viss um lausnina sem hann leggur til.

November 10, 2006

Women

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 1:18 pm

Know your limits.

Kínverkst eldflaugaslys

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 12:06 pm

Ég man ekki eftir að hafa heyrt af þessu slysi, að kínversk geimflaug hafi brotlent á nærliggjandi þorpi.
Þeir eru ekkert að hafa fyrir að segja frá svona smáatburðum, þó 500 manns týni lífi.

November 7, 2006

Örstutt bíómynd

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 4:43 pm

um nýtt heimsmet sem mun ekki gagnast jarðarbúum neitt.

Atvinnubloggarar

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 4:40 pm

Nú í undirbúningi kosninganna vestanhafs eru menn að skoða nánar bloggarana. Þeir eru orðnir óhemju valdamiklir í skoðanamótun almennings, ekki síst fyrir að þeir hafa lengi haft ákveðið grasrótaryfirbragð.

Í ljós kemur hins vegar í þessari áhugaverðu úttekt að margir þiggja umtalsverðar fjárhæðir frá frambjóðendum til að fjalla um þá á jákvæðan hátt.

Skyldi ofurbloggarinn Steingrímur S ennþá vera tengdur sínum fyrrum vinnuveitanda?

November 6, 2006

Ísland - best í heimi?

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 2:42 pm

Skv þessari frétt telur Transparency International að spilling sé næst minnst á Íslandi af gjöfvöllum heiminum. Gallinn er bara að þessi samtök horfa nánast eingöngu á hversu útbreiddar beinar mútur eru í stjórnkerfinu þegar þeir meta umfang spillingar.

Allir vita að slíkt hefur aldrei viðgengist hér.

Ef þeir hefðu mælt hvernig stjórmálaflokkar útdeila opinberum styrkjum og greint hversu mikið gagnsæi er á fjárveitingum til stjórnmálaflokka væri niðurstaðan eflaust verulega önnur.

November 4, 2006

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 4:33 pm

leið til að hlusta, og horfa, á synfoníur.

Skyldi djammið hafa blindað

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 4:22 pm

einhverja til að framkvæma eitthvað svipað þessu?

Pizzakeila

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 2:57 pm

Ný sköpun hefur komið fram í skyndibitapizzum, eitthvað sem engum virðist hafa dottið fyrr í hug að gera.

Rekum Rumsfeld

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 2:56 pm

Skv nýjustu sögunum munu land- sjó og flugher bandaríkjanna gefa út sameiginlega yfirlýsingu á mánudaginn þar sem krafist er afsagnar Rumsfeld. Heimurinn gæti batnað.

November 3, 2006

Skrá sig

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 5:32 pm

hér. Þetta virðist einna vænlegasti vettvangurinn sem sést hefur um tíma til að hrista upp í illa stöðnuðum stjórnmálum hér á landi.

October 29, 2006

2 jarðir

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:55 am

Samkvæmt nýju áliti WWF verður mannkynið búið að fullnýta tvær jarðir að náttúruauðlindum árið 2050 .

Ef spárnar rætast og vistkerfi jarðarinnar hefur hrunið árið 2050, hvernig ætlar þú að svara spurningum barnabarnanna þinna: Hvað gerðir þú á meðan hægt var að breyta einhverju?

October 28, 2006

Frumulíffræði

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 1:07 pm

Það sem sýnt er í þessu skýringarmyndbandi á nokkrum mínútum tók mig mánuði að skilja í læknanáminu.

Mjög fallegt, mæli með því að verja nokkrum mínútum í að dást að mikilfengleika lífsins.

October 27, 2006

Sjúkt

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:23 pm

sjúkt sjúkt sjúkt

Engum…

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:21 pm

…nema japönum dettur eitthvað þessu líkt í hug, að höfða til móðurtilfinninga til að selja aukahluti við gemsana.

Fílar að nauðga nashyrningum

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:18 pm

Líklega finnst einhver ég vera furðulegur, en þessi frétt úr New York Times um breytta hegðun fíla finnst mér áhugaverð. Í henni eru rakin flókin fjölskyldutengsl fíla þar sem uppeldi er sinnt í stórum hópum með eldri meðlimum og í raun er greinilegt hversu miklu hlutverki ömmurnar gegna.. Nú eftir langavarndi truflun manna á þessu fjölskyldumynstri er hegðun fíla farin að breytast verulega, þeir eru farnir að ráðast oftar á fólk og drepa, þeir berjast meira innbyrðis og eru farnir að nauðga og drepa nashyrninga.
Skoðuð eru tengsl milli munaðarlausra og ofbeldisfullra barna og fílsunga og þau eru merkilega mikil.

Stuttur útdráttur um áhugaverðustu hlutina hér.

Ég er alltaf meira og meira hrifin af þessari heimssýn, að horfa á hegðun manna og dýra sem náskylda og reyna að læra eitthvað af dýraríkinu til að skilja betur okkur sjálf.

October 26, 2006

Opinber heimasíða Norður Kóreu

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:35 am

Merkileg m.a. fyrir að N-Kórea er nánst ekkert á netinu enda er síðan vistuð í Þýskalandi.

Diplómatablogg

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:34 am

Á vegum sameinuðu þjóðanna er nú rifist um hvernig skuli bregðast við máli Jans Pronk, sendiherra SÞ í Súdan. Maðurinn hefur tekið upp á þeim almenna sið að blogga um líf sitt þar og látið fljóta með ýmislegt sem öllu jöfnu ekki fer frá diplómata nema dulkóðað til stjórnvalda í heimalandinu.

Hátæknilækningar

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 11:29 am

Hér heima er rifist um hátæknilæknisfræði. Rússar reyna að lækna fíknisjúkdóma og þunglyndi með aðeins eldri ráðum. Virkar eflaust á einhvern.

October 25, 2006

Kosningabarátta A.D. 2006

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 12:47 pm

Frétt um Marilyn Musgrave
. Nýtt stríð er nú að sigla í gang. Dreift hefur verið lista yfir slóðir á neikvæðar fréttir um repúblikana í BNA og markmiðið er að fá sem flesta til að setja slóðrinar inn á bloggsíðurnar til þess að fréttirnar endi efst á Google leitum um viðkomandi.

Nýr baráttuvettvangur stjórmálanna, ekki spurning.

October 23, 2006

Ísland í heimspressunni

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:23 am

frá Kleifarvatni með orðunum: “munið að þetta er land sem finnst Björk eðlileg”

October 16, 2006

Virðing

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:36 pm

kínverja fyrir mannslífum sést á þessu skýra myndbandi.

Tíbetar skotnir af færi eins og hundar.

Ekki hugmynd

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:30 pm

um hvort þetta virkar. Frjósemismælir á úlnliðinn er hins vegar nýtt tæki.

Verstu

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:28 pm

listamenn jarðarinnar eru nú staddir í næsta húsi. Vitleysingar sem sýna mynd af Slippnum með skjávarpa á húsið mitt og spila iðnaðarhávaða úr hátölurum. Þetta á víst að kallast listaverk.

Það má svo sem búast við því þegar búið er í miðbænum að hér sé skemmtanahávaði, tónleikar, djamm og tilheyrandi. Þetta er hins vegar ekki iðnaðarhverfi, þeir gætu alveg eins sett loftpressu hér fyrir utan húsið og kallað list.

October 13, 2006

Svona

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:00 am

á að taka andskotana sem hringja og trufla heimilisfrðinn með sölumennsku

October 6, 2006

Sænskur

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 1:07 pm

tónlistarmyndbandsgjörningurí stuttmyndaformi.
Takið eftir smokkanotkuninni.

October 5, 2006

Veit

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:06 pm

ekki alveg með þetta ráð..

October 3, 2006

Fiskigreyin

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 3:11 pm

eiga ekki mikla möguleika lengur.

Með fiskileitartæki á veiðistönginni fer þetta að verða nokkuð ójafnt.

Ég væri

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 2:11 pm

til í að prófa þessa íþrótt.

Nýr valkostur

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 1:56 pm

fyrir þá sem langar í heitan pott en hafa ekkert heitt vatn.
Með þessu tæki væri hægt að taka með heita pottinn í Hornstrandaferðina, kynda með rekavið og njóta baðs.

Komið á óskalistann.

Á ekki að geta gerst

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 1:39 pm

Þetta á að vera ómögulegt, að lifa af árekstru tveggja þotna á flugi.

Gerðist samt í Brasilíu um daginn.

Myndræn

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:29 am

framsetning á sögu miðausturlanda. Tekur stutta stund en sýnir myndrænt hvernig ríki hafa myndast og fallið á svæðinu í árþúsundir.

October 1, 2006

Luftgíar - úrelt

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:12 am

Lúftgítarinn er gamall húmor. Nú eru japanarnir farnir að keppa í luftsexi.

Ekki það hljómi sérstaklega áhugavert.

September 28, 2006

Barnahárkollur

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:23 pm

Ekki spyrja mig til hvers.

Lögfræði

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:14 pm

Ekki er ég lögfræðingur. Mér sýnist ég þó geta skilið fréttirnar að westan nú um að á bandaríkjaþingi sé klerkastjórnin að fá í gegn að afnema Habeas Corpus. Habea þetta er víst sú grundvallarregla að sakborningur eigi rétt á einhverri vörn og hefur verið almenn lagaregla frá því að Magna Carta var undirritað árið 1215.

Ef lagabreytingarnar verða staðfestar er þessum andskotum orðið löglegt að halda mönnum eins lengi og þeim sýnist án dóms og laga og stunda pyntingar.

Þetta staðfestir í raun að lög eru alltaf verk ófullkominna manna en engin náttúrulögmál.

Getur rétt verið ólöglegt og rangt löglegt?

September 24, 2006

Amerískt kraftaverk

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:17 pm

hér.

Allir

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:00 pm

Hver einn og einasti Simpson þáttur virðist vera á þessari síðu.
Endalaust efni til að drepa tímann, ef einhver skyldi eiga of mikið af honum.

September 19, 2006

Hættusamanburður

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:06 pm

Eitt stærsta verkfærðiklúður sögunnar

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:59 pm

Ég held ég hafi vísað á myndband um þennan furðulega atburð áður.
Rakst samt á aðra umfjöllun hér.

Páfinn taki Múhammeðstrú

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 8:51 pm

Elsti sonur Gaddafis hefur komið fram með lausn á deilum í kjölfar yfirlýsingar páfans á dögunum. Auðvitað er eina rökrétta í stöðunni að páfinn taki múhammeðstrú.

Að okkur skyldi ekki detta þetta í hug fyrr.

September 17, 2006

Bush að grænkast

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 5:27 pm

Samkvæmt nýjustu fréttum mun vera í burðarliðnum ný og grænni stefna Bush. Þrýstingur þessara skoðana er að verða svo mikill að meira að segja þeir sem stjórna Bush eru að átta sig á því að þeir verða að fylgja straumnum.

Svo er bara að sjá hvort það sama fari ekki að gerast hér heima. Hvar er íslenski skatturinn á eyðslumikla bíla?

September 15, 2006

Brúðarkjólar

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:55 pm

úr klósettpappír.

September 14, 2006

Che

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 10:32 pm

Fersk ádeila. Má túlka að vild.

Ekki

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:49 pm

nenni ég að skrifa hér um allar bækur sem ég les. Ég kláraði þó nýlega tvær sem skemmtu mér svo ljómandi vel að ég verð að vekja athygli á þeim.

Í bókinni “Plötusnúður Rauða hersins” fjallar Wladimir Kaminer um upplifun sína af síðustu árum Sovét. Kaminer kom hingað um daginn með plötusnúðagjörninginn sinn Russendisko sem ég því miður missti af.

“Sick Puppy” eftir Carl Hiaasen gerist á Florida. Þrátt fyrir að vera um 500 bls að lengd heldur hún athyglinni fullkomlega og ég hef sjaldað hlegið jafn mikið af einni bók. Í leiðinni tekst henni að koma til skila svo sterkum áróðri fyrir umhverfisvernd og gegn spillingu í stjórnmálum að í raun er hér með sterkari ádeilubókum sem sjást.

Flugöryggi

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:20 pm

Öll höfum við heyrt óteljandi sinnum öryggisræðuna við flugtak.
Hér er útgáfa ræðunnar sannleikanum samkvæmt, sem við fáum líklega aldrei að heyra.

Geðsjúklingar og netið

Filed under: Uncategorized - Administrator @ 9:12 pm

Við greiningu á geðsjúkdómum eru menn nú að átta sig á möguleikunum sem felast í að skoða heimasíður viðkomandi.
Gott dæmi um slíka síðu einstaklings sem virðist nokkuð illa haldinn af líklega maníu má sjá hér. Takið eftir hörmulegri vefhönnuninni, lengd síðunnar og samsæriskenningunum.

Get free blog up and running in minutes with Blogsome | Theme designs available here


View My Stats